Í íþróttalífi landans er vel þekkt að sterkar tengingar geti myndast hjá fólki sem fer saman í gegnum barna- og unglingastarfið. Slíkt getur skilað sér í vinskap eða kunningsskap fyrir lífstíð. Af og til hittast hópar til að rifja upp gamla tíma í íþróttunum jafnvel þótt það hafi verið fyrir mörgum áratugum.