Norski líknardrápsaðgerðasinninn Steinar Wangen, „engill dauðans“ öðru nafni, hlaut fimmtán ára dóm með öryggisgæslu, eða „forvaring“, fyrir Lögmannsrétti Agder í Skien í morgun sem staðfesti dóm Héraðsdóms Vestfold frá því í júlí. Þar með má gera því skóna að ferill Wangens, sem á að baki þrjú manndráp um sína daga, sé á enda þar sem réttarúrræðið gerir það kleift að halda honum innan múranna til æviloka teljist hætta á ítrekunarbrotum fyrir hendi.