LEIGUFÉLÖG ALMENNT ÓÁNÆGÐ MEÐ TAKMARKANIR Á LEIGU Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverja leigubremsan sé. Hann segir gagnrýni ekki koma á óvart.„Ég veit ekki um nein leigufélög eða neina sem eru að leigja út íbúðir sem eru ánægðir með einhvers konar takmarkanir eða breytingar á leigu,“ sagði Ragnar Þór. Rætt var við hann í Kastljósþætti kvöldsins.Þetta eigi einnig við um óhagnaðardrifin leigufélög.„Það á sér skýringar og er skiljanlegt, óhagnaðardrifnu félögin, eins og Bjarg, sem er þekktast af þeim, og leigufélag Öryrkjabandalagsins og fleiri,“ segir Ragnar.„Þau hafa haft áhyggjur af því að við séum að hækka einu sinni á ári og það sé þá gert með meiri hætti heldur en að fara svona hægari tröppugang upp. Verðtryggðar skuldbi