Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður menningarstofu Fjarðabyggðar, segir hana setja skemmtilegan blæ á landshlutann:„Á dögum myrkurs þá erum við náttúrlega að reyna að fagna myrkrinu. Því þar hvílum við okkur. Þar verða hugmyndir til og sköpunargleðin fær að leggjast í dvala og úr verða stórkostleg listaverk.“Hátíðin nær hámarki um helgina, á hrekkjavöku.Ljósalistaverk listahópsins Mercury Maze hafa vakið mikla athygli en þau umbreyta kirkjum í þremur bæjum Fjarðabyggðar í lifandi listaverk með ljósum og hljóðum.Katerina Blahutova er hluti af listahópnum. „Hugmyndin er sprottin af sögunni um völvuna af Hólmahálsi og verkið býður fólki að taka þátt í verndun fjarðar