Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði

Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu árum.Guðmundur Fylkisson lögreglumaður sem vel þekkir til barna í þessum hópi segir fátt hafa komið sér á óvart í þættinum.„Þetta er grein sem hefur vaxið mjög hratt og það er ástæða fyrir því,“ segir Guðmundur.Hver er hún? „Þörfin á úrræðunum fyrir þessa einstaklinga.“Aðalstarf Guðmundar er að leita að týndum börnum og ungmennum - meðal annars þeim sem dvelja í búsetuúrræðunum.„Sum þeirra glíma við fíknina sem er til viðbótar ofan á annað. Önnur eru kannski í miklum hegðunarvanda og eru kannski ósátt við þær hömlur sem þau þurfa að búa við vegna þeirra öryggis og annarra.“Leitarðu að barni úr svona búsetuúrræði til dæmis í hverjum mánuði? „Já,
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar