Formaður Stofnunar múslíma á Íslandi segir pakistanskan trúarleiðtoga, sem hefur varið dauðarefsingu fyrir þá sem snúa bak við íslam, hafa mætt í stórmosku stofnunarinnar við Bústaðaveg sem ferðamaður. Heimsóknin hafi ekki verið á vegum stofnunarinnar. Bakgrunnur leiðtogans, Muhammad Taqi Usmani, hafi ekki verið kannaður fyrir fram og ræða hans í moskunni verið almenns eðlis um íslam. Stofnun múslíma á Íslandi taki ekki undir umdeildar skoðanir hans.