Forseti ASÍ telur hið opinbera hafa gengið of langt í uppsögnum að undanförnu. Hann segir einkennilegt að vísa til þess að með uppsögnum sé verið að tryggja að gjaldskrár hækki ekki.Stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar var fækkað um sjötíu og fjögur í gær og fimmtíu sagt upp. Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í dag. Sjö að auki fá tímabundna ráðningarsamninga sína ekki endurnýjaða. Sjúkratryggingar Íslands fækka störfum um sjö stöðugildi. Þá voru einnig uppsagnir hjá ÁTVR í vikunni.Georg Páll Skúlason forseti ASÍ segir sambandinu þykja ansi langt gengið í uppsögnum. ASÍ voni að eitthvað lát verði á þeim.„Það er ekkert sem kallar á að opinberir aðilar komi svona fram þegar verið er að fást við efnahagsástandið eins og þetta er núna.“ KRÖFUR VERKALÝÐSINS EKKI AÐ SNÚAST Í