Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk

Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk Theresu Miller. Stjórnin segir að sú ákvörðun hafi verið tekin af Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra án þess að listakonan hafi verið upplýst um fyrirhugaðar aðgerðir.Óásættanlegt sé að ráðist hafi verið í slíkt inngrip í listaverk án þess að fagleg málsmeðferð hafi verið viðhöfð eða viðeigandi samráð.Verkið er á Hálsatorgi í Hamraborg og var opnað 2019. Verkið samanstóð af tólf línum sem tákna áttu hæstu stöðu sólarinnar á 21. degi hvers mánaðar. Í stað verksins var komið fyrir tilkynningu frá Kópavogsbæ um endurnýjun miðbæjar Kópavogs sem mikið hefur verið tekist á um. SKORA Á BÆINN AÐ ENDURGERA VERKIÐ EÐA EFNA TIL SAMKEPPNI Í tilkynningu
Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar