Börkur Birgisson, sem hlotið hefur dóma fyrir alvarlega ofbeldisglæpi, birti á samfélagsmiðli sínum myndskeið með myndum af eiginkonu og syni Andra Más Ágústssonar, eftir að Andri Már kom fram í fréttaskýringaþættinum Kveik í gær. Í þættinum var meðal annars fjallað um búsetuúrræðið Vopnabúrið, og sagðist Andri Már hafa séð Börk við störf þar.Andri Már er á öllum myndunum í myndskeiðinu, en aldrei einn. Á hverri einustu mynd er annað hvort sonur hans eða eiginkona líka. Með myndskeiðinu skrifar Börkur:„Kæru vinir. Förum varlega í umferðinni og sýnum þroskaheftum sérstaka tillitsemi.“Börkur Birgisson, sem á að baki dóma fyrir alvarlega ofbeldisglæpi, birti myndskeið af fjölskyldu viðmælanda Kveiks í kjölfar þáttarins sem sýndur var í gær. Viðmælandinn ræddi meðal annars um aðkomu Barkar að