Hækka á kílómetragjaldið um ríflega 15% um næstu áramót. Magnús Barðdal, sveitarstjóri í Skagafirði, segir hækkunina bitna illa á sveitarfélaginu sjálfu og íbúum þess.„Við erum með skólaakstur um allar sveitir, þar sem er gríðarlegur akstur a hverjum degi um allar sveitir til þess að koma börnum í skóla. Svo er þetta auðvitað flutningskostnaðurinn. Fyrir allar þær vörur sem við nýtum hér út á landi. Þetta kemur beint inn í verðlagið þar.“ SVEITARFÉLÖG HÆKKI HÓFLEGA Í umsögn Skagafjarðar um frumvarpið um breytingar á kílómetragjaldinu kemur meðal annars fram að hækkun sem þessi hafi bein áhrif á fyrirtæki og heimili, ásamt því að hafa áhrif á þjónustusamninga sveitarfélagsins, til dæmis um skólaakstur. Þá segir Magnús að það sé skrítið að sveitarfélög haldi að sér höndum í gjaldskrárhækk