Öllum starfsmönnum Hjálpartækjamiðstöðvar hefur verið sagt upp og störf þeirra verið lögð niður. Sjúkratryggingar munu hætta eigin rekstri á verkstæðaþjónustu vegna hjálpartækja. Ákvörðunin er liður í stefnu og nýju skipulagi Sjúkratrygginga og hefur áhrif á sjö stöðugildi.Til stendur að útvista verkefnum miðstöðvarinnar til annarra verkstæða sem munu sinna viðgerðum á hjálpartækjum og endurgerð hjálpartækja sem notendur hafa skilað.Í tölvupósti frá Sigurði Helga Helgasyni forstjóra SÍ til starfsfólks, sem fréttastofa hefur séð, kemur fram að stofnunin hafi rætt við þá sem taka við verkefnum verkstæðisins og beðið þá um að skoða möguleika á því að bjóða starfsfólkinu sambærileg störf.Gert sé ráð fyrir að flestir muni starfa áfram hjá stofnuninni meðan á yfirfærslu verkefnanna stendur.Þá ve