Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrra fjóra sænska menn sem grunaðir voru um að hafa verið ráðnir til að fremja ofbeldisbrot fyrir greiðslu hér á landi.„Við fengum um mitt ár í fyrra upplýsingar um að það væru væntanlegir aðilar til landsins í þeim tilgangi að fremja alvarlegt ofbeldisbrot hér á Íslandi,“ segir Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurnesjum.„Við höfðum ekki upplýsingar um hverjir þessir aðilar voru en góð greiningarvinna leiddi til þess að fjórir sænskir aðilar sem flugu til landsins frá þremur mismunandi löndum voru stöðvaðir allir sama daginn,“ segir Stefán. DÆMDUR FYRIR TILRAUN TIL MANNDRÁPS Tveimur vikum síðar var einn mannanna sem lögregla handtók dæmdur fyrir tilraun til manndráps í Svíþjóð. „Þar var 16 ára stúlka notuð til að lokka fórna