Rúmlega þriðjungur íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómum, eins og fram kom í Kveik á dögunum. Alma Möller heilbrigðisráðherra vill bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks og reyna önnur úrræði áður en geðrofslyfjum er beitt.Notkun geðlyfja á sex hjúkrunarheimilum Heilbrigðisstofnunar Austurlands er komin undir landsmeðaltal eftir markvisst átak. Fagstjóri hjúkrunar segir lykilinn að nálgast þarfir hvers og eins og leita annarra leiða en lyfjagjafar til að bæta líðan.Á Austurlandi hefur verið unnið að því að draga úr notkun geðlyfja á hjúkrunarheimilum. Sigurveig Gísladóttir, fagstjóri hjúkrunar á hjúkrunarsviði Heilbrigðisstofnunar Austurlands, hefur yfirumsjón með sex heimilum stofnunarinnar. Hún rannsakaði geðly