Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, óttast að áframhaldandi fækkun áætlunarflugferða til Ísafjarðar og Bíldudals geti orðið til þess að íbúar hætti að treysta á flugið og að það leggist að lokum af. Hann gagnrýnir jafnframt fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú og vill að núverandi fyrirkomulag niðurgreiðslna verði látið standa óbreytt.