Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í dag. Sjö að auki fá tímabundna ráðningarsamninga sína ekki endurnýjaða. Þetta er hluti af hagræðingu sem stjórnendum fyrirtækisins var gert að ná fram, meðal annars til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sorpu. Starfsfólki fyrirtækisins fækkar um 17. Það á að skila 200 milljóna króna sparnaði á ári. Starfsmönnum fyrirtækisins fækkar því um sjö prósent af heildarfjölda.Í tilkynningunni segir að stjórn Sorpu hafi falið stjórnendum fyrirtækisins að leita hagræðingar. Markmiðið með henni er meðal annars að tryggja að gjaldskrárhækkanir verði undir 2,5 prósentum.Ríki og sveitarfélög samþykktu í haust að gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5 prósent. Það gerðu þau verkalýðsfélög og Samtök atvinnulífsins sömdu um að kjaras