64 látnir eftir lestarslys á Spáni og 50 alvarlega slasaðir

Stjórnvöld á Spáni hafa staðfest að 64, hið minnsta, hafi farist í lestarslysi sunnan við Madríd í morgun. 80 slösuðust, þar af 50 alvarlega. Björgunarstörf standa enn yfir á vettvangi. Óttast er að enn fleiri hafi beðið bana í slysinu. Hið minnsta 55 af þeim sem slösuðust hafa verið fluttir á spítala í Castilla-La Mancha-héraði. EINNI HRAÐLEST EKIÐ Á AÐRA KYRRSTÆÐA HRAÐLEST Spænski fjölmiðillinn El País hefur greint frá því að hraðlest hafi verið kyrr á lestarteinum og að annarri hafi verið ekið aftan á hana. Tveir vagnar lestarinnar sem var kyrr ultu niður brekku. Þá hafa spænskir fjölmiðlar greint frá því að svo virðist sem að fyrir slysið hafi eitthvað komið upp á lestarteinunum og nokkrum lestum því gert að stoppa. Svo hafi öllum verið leyft að halda áfram en að ein lestin hafi ekk
64 látnir eftir lestarslys á Spáni og 50 alvarlega slasaðir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar