Loka sendiráðinu snemma vegna mótmæla

Vináttufélag Íslands og Kúbu hefur boðað til mótmælafundar við bandaríska sendiráðið í Reykjavík í dag. Mótmælin beinast gegn viðskiptabanni Bandaríkjanna á Kúbu. Þau eru haldin í dag vegna atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um ályktun gegn viðskiptabanninu.Bandaríska sendiráðið hefur sent frá sér öryggisviðvörun vegna mótmælanna. Bandarískir ríkisborgarar eru hvattir til að halda sig fjarri mótmælunum en sýna varkárni ef þeir eru þar nærri. Þar segir að jafnvel þegar boðað sé til friðsamlegra mótmæla geti komið til árekstra eða jafnvel ofbeldis.Sendiráðinu verður lokað snemma í dag vegna mótmælanna.Bandaríska sendiráðið við Engjateig.RÚV / Ragnar Visage
Loka sendiráðinu snemma vegna mótmæla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar