Ísland tekur ekki þátt í Eurovision 2027

Sjónvarpsstöðvar frá 36 ríkjum taka þátt í Eurovision, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, samkvæmt lista EBU sem birtur var í dag. RÚV er ekki þeirra á meðal.„Við höfum ekki tilkynnt þátttöku,“ segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.Eurovision fer fram í Bargas í Búlgaríu 11., 13. og 15. maí 2027.Frestur til að tilkynna þátttöku er runninn út en EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, setti fyrirvara um að Spánn, Slóvenía og Ísland gætu tilkynnt þátttöku síðar. Ekki hefur orðið af því og að óbreyttu verða þessi þrjú ríki ekki með.Í tilkynningu á vef EBU segir að RTVE á Spáni og RTVSVO í Slóveníu hafi ekki tekið ákvörðun um þátttöku og hafi EBU því samþykkt að veita þeim frest þar til í desember að tilkynna þátttöku. Forstjóri hinnar spænsku RTVE hefur lagt til að stöðin taki ekki þátt.A
Ísland tekur ekki þátt í Eurovision 2027

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar