Nauðsynlegt að bregðast við innviðaskuld lögreglunnar

Nauðsynlegt er að bregðast við innviðaskuld innan lögreglunnar segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og formaður stýrihóps sem mótaði tillögur fyrir nýja löggæsluáætlun dómsmálaráðuneytisins. . Áætlunin var kynnt fyrir embættum lögreglunnar og starfsfólki héraðs- og ríkissaksóknara í dag.Í henni kemur fram að töluverð innviðaskuld hefur myndast hjá lögreglu. Unnið er að heildstæðri greiningu á húsnæðisþörfinni í dómsmálaráðuneytinu. Grímur segir að hún felist þó í fleiri þáttum.„Hún er fólgin í mannafla og hún er fólgin í tækjum og húsnæði. Þannig að allt þetta er eitthvað sem þarf að bæta hjá lögreglu en ég geri mér líka alveg grein fyrir því og hef innsýn í það að það er víða innviðaskuld í þessu samfélagi,“ segir Grímur. Til stendur að lögreglumönnum verði fjölgað um alls 200 fyri
Nauðsynlegt að bregðast við innviðaskuld lögreglunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar