Hvorug blokkin nær meirihluta á ísraelska þinginu eftir kosningarnar í gær þegar búið er að telja nærri áttatíu og fimm prósent atkvæða. Kjörsókn meðal araba sem búa í Ísrael jókst um 50% frá því í síðustu kosningum.Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, er stærstur og ekki útséð með að hann verði áfram við völd.En það er margt sem gæti gerst. Likud er með 27 þingsæti eins og staðan er núna en það eru 120 sæti á ísraelska þinginu. Næststærstur er flokkur Gadi Eisenkot, sá sem þykir líklegastur að skáka Netanjahú, Yashar-flokkur hans er með 22 sæti.Netanjahú og Eisenkot leiða blokkirnar tvær sem flokkar í framboði mynduðu fyrir þessar kosningar en hvorug þeirra nær hreinum meirihluta. Það þarf 61 þingmann og Netanjahú-blokkin er með 54 og Eisenkot-blokkin 49. GÆTI VILJAÐ NEY