Barnæskan tilheyrir börnunum okkar, ekki tæknirisunum, segja forsætisráðherrar Norðurlandanna í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir segja aðgang að samfélagsmiðlum og snjallsímum veittan of snemma og vilja bjóða veldi tæknirisanna birginn. Kristrún Frostadóttir segir mikla samstöðu um þessi mál meðal leiðtoga Norðurlandanna. FYLGJA EFTIR MARIENBORG YFIRLÝSINGUNNI Árlegt þing Norðurlandaráðs fer fram þessa dagana í Helsinki og í gærmorgun funduðu forsætisráðherrar Norðurlandanna. Þar fylgdu þeir eftir yfirlýsingu frá í sumar, Mairenborg-yfirlýsingunni, um áhrif nýrrar tækni, samfélagsmiðla og gervigreindar á börn og unglinga og þeirra heimsmynd. MIKIL SAMSTAÐA MEÐAL LEIÐTOGANNA Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir mikla samstöðu meðal leiðtoga Norðurlandanna um þessi mál. Hún segi