A Gjörningarlistahátíð var haldin á Akureyri á dögunum. Fjöldi listamanna tók þátt í hátíðinni. Þar var fremst í flokki Anna Richardsdóttir sem hefur lagt stund á gjörningalist á Akureyri í bráðum fjörtíu ár. Í þetta sinn fór hún á árabát niður Gilið á Akureyri og hafði með sér heilan karlakór.