Lögreglan á Vestfjörðum hefur orðið vör við hjólför eftir fjórhjól eða álíka farartæki upp um fjöll, þrátt fyrir að snjór þekji ekki jörð. „Það er afleitt ef veiðimenn stundi utanvegaakstur með tilheyrandi jarðraski,“ segir í færslu Lögreglunnar á Vestfjörðum á Facebook.Rjúpnaveiðitímabilið hófst 23. október en stendur mislangt eftir landshlutum. Því lýkur fyrst á Norðvesturlandi og Suðurlandi 17. nóvember en síðast á Austurlandi 22. desember.Lögreglan minnir veiðimenn einnig á reglur um meðferð skotvopna nærri vélknúnu farartæki.