Formaður Bændasamtakanna birtir færslu á Facebook með mynd af nýrúnum hrúti með verndandi arfgerð gegn riðu. Myndin er af rassinum á hrútnum og ber handbragðinu við rúninginn vitni.Færslur fjölmiðla upp úr samfélagsmiðlafærslum með myndum af lögulegum afturendum hafa einmitt tíðum verið vel lesnar.Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, segir í færslunni sem fylgir myndinni að flestir dagar fari í fundarsetur og bændapólitík en meðfram þurfi líka að sinna bústörfunum og undanfarið hafi hann rúið líflömb á milli funda.„...og hér er ein mynd af vel gerðum ARR/ARR hrút því til sönnunar að eitthvað hafi verið gert.“ARR er verndandi arfgerð gegn sauðfjárriðu. Unnið er að því að rækta hana upp í íslenska sauðfjárstofninum með það að markmiði að útrýma riðuveiki.„Innleiðing verndandi arfge