Mikil kólnun á íslenskum vinnumarkaði og vaxandi svartsýni atvinnurekenda bendir til þess að hagvaxtarhorfur næstu missera kunni að vera ofmetnar, samkvæmt nýrri greiningu. Á sama tíma og störfum fækkar á almennum vinnumarkaði heldur opinberum starfsmönnum áfram að fjölga, sem veldur því að aðlögun hagkerfisins að minni eftirspurn verður mun harðari í einkageiranum.