Gul viðvörun í fyrramálið

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suðurlandi og við Faxaflóa vegna suðaustan hvassviðris síðla nætur og í fyrramálið.Lægðin sem nálgast er þó ekki eins nálægt landi og fyrst leit út fyrir, að sögn Heru Guðlaugsdóttur, veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.„Þessar viðvaranir snúast aðallega um vindhviður,“ segir Hera. Útlit er fyrir 13 til 20 metra á sekúndu og rigningu. Vindur gæti farið yfir 30 metra á sekúndu í hviðum við fjöll. Veðurstofan bendir á að veðrið geti orðið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.„Það eru aðallega hviðurnar sem við erum að vara við. Það getur verið ansi hviðótt við fjöll og þess vegna gáfum við út þessa viðvörun, aðallega til að vara fólk við og þá sérstaklega þá sem hyggja á ferðalög á þessum tíma,“ segir Hera.Viðvörunin við Faxaflóa te
Gul viðvörun í fyrramálið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar