Brotamenn sitja fyrir lögreglumönnum við heimili þeirra, virkum brotahópum hefur fjölgað um helming og vísbendingar eru um að þeir greiði öðrum fyrir ofbeldisverk og hagnýti börn. Þessari þróun er lýst í nýrri löggæsluáætlun dómsmálaráðuneytisins, þar sem til skoðunar er að stofna sérstaka einingu á landsvísu gegn skipulagðri brotastarfsemi.