Eitt stærsta kjúklingabú Danmerkur brýtur reglur er varða hvíldartíma dýra til þess að hraða framleiðslu á kjúklingakjöti. Þetta sýnir umfjöllun danska miðilsins TV2 sem nýtti faldar myndavélar til þess að opinbera að dýrin fá einungis þrjár klukkustundir af myrkri í dag en dönsk lög kveða á um að klukkustundirnar verði að vera sex. Danskur ráðherra vill banna framleiðslu þess sem kallað er „túrbókjúklingur“ í dönskum miðlum.