Fylking Benjamins Netanjahús forsætisráðherra hefur hlotið meiri stuðning en bandalag stjórnarandstöðuflokka þegar 66 prósent atkvæða í ísraelsku þingkosningunum hafa verið talin. Það dugar honum þó ekki til að mynda meirihlutastjórn.Flokkar sem styðja Netanjahú hafa fengið 56 þingsæti á móti 48 þingsætum stjórnarandstöðubandalagsins, samkvæmt nýjustu tölum. Flokkar araba hafa 16 þingsæti.Bæði Netanjahú og Gadi Eisenkot, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hafa lýst því yfir að þeir hyggist hefja stjórnarmyndunarviðræður þrátt fyrir að hafa ekki tryggt sér meirihluta. Netanjahú hefur þvertekið fyrir samstarf við flokka Araba og sagði að slíkt væri bannað þar sem það myndi stofna Ísrael í voða. Yair Golan, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Demókrata, hvatti stjórnarandstöðuflokka í dag til að v