Árborg í mínus á fyrri hluta árs

Sveitarfélagið Árborg var rekið með 129 milljóna króna halla á fyrri helmingi árs. Verðbólga setti sitt mark á reksturinn því fjármagnsgjöld voru 300 milljónum krónum meiri en búist var við og verðbætur og gengismunur voru 922 milljónir.Í tilkynningu frá bænum segir að rekstrarniðurstaðan fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta hafi verið jákvæð um 1.540 milljónir króna. Þar er haft eftir Braga Bjarnasyni bæjarstjóra að bæjarstjórn þurfi að taka erfiðar ákvarðanir við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.Ráðhús Árborgar.RÚV / Ragnar Visage
Árborg í mínus á fyrri hluta árs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar