Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 70 manns fyrir umboðssvik og peningaþvætti með því að hagnýta sér kerfisvillu í netbanka Landsbankans í október í fyrra og svíkja með því út úr bankanum tæpar 96 milljónir króna. Ákæran í málinu er 150 blaðsíður og fréttastofa hefur hana undir höndum. Tveir menn á fertugsaldri eru aðalmenn í brotunum samkvæmt ákærunni og nýttu sér villuna til að afla sér peninganna. Fjórir til viðbótar, karlmenn á aldrinum 30 til 48 ára, eru ákærðir fyrir að hafa útvegað annað fólk í að þvætta peningana. Hinir 64 eru ákærðir fyrir peningaþvætti með ýmsum hætti, að flytja fé milli reikninga, taka út reiðufé og kaupa sér ýmsan dýran varning, til dæmis rándýrar dúnúlpur, ilmvötn, tölvur og fleira. Landsbankinn gerir 96 milljóna bótakröfu á hendur sakborningunum.