Það vakti athygli í síðasta mánuði þegar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins talaði um að Kanada gæti fengið „auka-aðild“ að Evrópusambandinu (e. associate membership); nokkuð sem fáir áttuðu sig á hvað þýddi. Eftir stefnuræðu Von der Leyen, þar sem hún notaði þetta hugtak, hefur komið í ljós að ríkisstjórnir aðildarríkja ESB virðast ekki verið hafðar með í ráðum, áður en hún lagði þetta til.„Það er ennþá verið að ræða þetta,“ sagði háttsettur embættismaður ráðherraráðsins við fréttamenn hér í Brussel í gær, þegar hann og fleiri embættismenn fjölluðu óformlega um leiðtogafund Evrópusambandsins og Kanada, sem haldinn verður í Montreal á morgun og föstudag.Á þessum óformlega blaðamannafundi í gær var lögð áhersla á mikilvægi þessa leiðtogafundar og þau skref se