Landsmenn eiga von á frekar rólegu veðri víðast hvar í dag. Þó verður strekkings vestanátt á Austurlandi fram eftir degi og smá væta verður á norðausturhorninu. Hiti verður á bilinu tvö til tíu stig. Í nótt hvessir og byrjar að rigna. Það ætti þó að draga úr vindi og stytta upp að mestu fyrir hádegi á morgun.Vestan 8-15 austanlands fram eftir degi, en annars mun hægari breytileg átt. Styttir smám saman upp fyrir norðan og austan, en skýjað með köflum sunnan heiða. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðausturlandi. Snýst í vaxandi austanátt suðvestan- og vestanlands í kvöld.Austan 13-20 og rigning í nótt, hvassast undir Eyjafjöllum, en lengst af þurrt fyrir norðan og austan. Snýst í sunnan 5-13 fyrir hádegi og styttir upp að mestu, fyrst suðvestanlands. Seinnipartinn fer að rigna aftur, síst þó