Síðasti ísfláki Triglav-jökulsins í Slóveníu er með öllu horfinn. Fleiri evrópskir jöklar hafa liðið fyrir heitt sumar en skammt er síðan jöklaeftirlit Sviss gaf það út að margir Svissneskir jöklar gætu horfið á næsta áratug.EPA / ANTONIO BATTriglav-jökullinn var áður mjög víðfeðmur en hann skrapp saman um 93% frá 1983–2003 þar til hann spannaði aðeins um tíu þúsund fermetra.Það sætti furðu hversu lengi eftir það ísbreiðan hélt sér en undanfarin fimm ár, sem telja þrjú heitustu sumur síðan mælingar hófust, minnkaði jökulbreiðan í nokkrar einangraðar ísskellur. Nýjar ljósmyndir af fjallinu sýna að nú er enginn þeirra eftir og að allur ís er endanlega horfinn.