Í dag verður vestan 8-15 m/s austanlands fram eftir degi en annars mun hægari breytileg átt. Það styttir smám saman upp fyrir norðan og austan en sunnan heiða verður skýjað með köflum. Hitinn verður á bilinu 2 til 10 stig og verður mildast á Suðausturlandi.