Leiðtogar og sendinefndir 48 Afríkuríkja eru væntanlegir til Moskvu í dag og á morgun til að sitja Rússlands-Afríkuráðstefnuna svonefndu, en hún er nú haldin í þriðja skipti.Rússland hefur löngum ræktað tengslin við Afríkuríki. Myndin er úr safni.ASSOCIATED PRESS / Sergei ChirikovRáðstefnan er boðuð af rússneskum stjórnvöldum í þeirri viðleitni þeirra að styrkja tengslin við lönd sem þau líta á sem náttúrulega bandamenn gegn Vesturlöndum.Tengslin á milli Rússlands og margra Afríkulanda ná raunar allt aftur til tíma Sovétríkjanna, en Rússland hefur lengi litið á aðkomu Afríku að alþjóðastjórnmálum sem nauðsynlegt mótvægi við vestræn yfirráð.Það viðhorf fær góðan hljómgrunn í heimsálfunni, ekki síst hjá fyrri nýlendum evrópskra þjóða.