Efri deild franska þingsins hefur samþykkt að frumvarp sem miðar að því að gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga fyrir tjóni sem hlýst af götumótmælum verði tekið til áframhaldandi umræðu á þjóðþinginu.Frumvarpið hefur verið gagnrýnt fyrir að þrengja að réttinum til að mótmæla en efri deildin samþykkti það með 229 atkvæðum gegn 105. Það var að mestu stutt af stjórnmálaflokkum á miðjunni og til hægri, þar á meðal af Þjóðfylkingunni, fjarhægriflokki Marine Le Pen.Frumvarpið var fyrst lagt fram vegna óeirða sem blossuðu upp eftir sigur fótboltaliðsins Paris Saint-Germain á Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í maí.Í ljósi mótmælaöldunnar sem nú gengur yfir Frakkland og hefur í sumum tilfellum þróast út í óeirðir hefur frumvarpið þó fengið nýtt vægi. FRIÐSAMIR MÓTMÆLENDUR SKAÐABÓTASK