Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolsonaro sætir rannsóknum í Brasilíu fyrir spillingu og peningaþvætti og þar sem hann var ekki kjörinn forseti er útséð með að hann öðlist þinghelgi.Dómsúrskurður var kveðinn upp að loknum kosningum sem meinaði honum að yfirgefa Brasilíu og var honum jafnframt gert af hæstarétti landsins að skila inn vegabréfi sínu. Áður en til þess kom var Bolsonaro hins vegar kominn langleiðina til Bandaríkjanna.Í kjölfarið var vegabréf hans fellt úr gildi en engu að síður tilkynnti utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að Bolsonaro og fjölskyldu hans yrði veitt vegabréfsáritun. Ekki var tekið fram hvert för þeirra væri heitið en fréttamiðillinn CNN hefur heimildir f