„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er fullt af fólki sem á um sárt að binda í dag. Þetta er erfiður dagur.“50 starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu uppsagnarbréf í dag, í þriðju uppsagnarhrinu nýs meirihluta. Borgarstjóri segir frekari hópuppsagna ekki að vænta.Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson voru gestir Kastljóss.Pétur Marteinsson segir of mikinn asa í kringum hagræðingar borgarinnar. 50 starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu uppsagnarbréf í dag. Næsta hagræðingaraðgerð er að fækka veikindadögum starfsfólks.Viðmið borgarstjórnarinnar er að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar eigi að vera 7,5% af heildarstöðugildum. Hildur segir viðmiðið byg