Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smíðuð í einingum í Póllandi og síðustu mánuði hefur hún verið sett saman á bökkum Ölfusár.Nú er því lokið og snemma í morgun hófust starfsmenn ÞG verktaka handa við að draga hana frá eystri bakka árinnar yfir á þann vestari. TEKUR 8-10 DAGA „Við áætlum að þetta taki 8-10 daga að draga yfir alla lengdina,“ segir Þorvaldur Hrafn Gissurarson forstjóri ÞG verktaka.„Hún er um 330 metrar að lengd, heildarþyngdin er rétt um 2.000 tonn,“ segir hann um stærð brúarinnar. 50 SENTÍMETRAR Í EINU Að flytja langa og þunga brú krefst mikils mannafla.Að verkinu koma um 70 manns sem vinna með öflugan tækjabúnað.„Það er búið að hengja í brúna gríðarlega öfl