Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram að gagnaverin hafi staðið undir öllum vexti í útflutningstekjum Íslands á fyrri hluta ársins – og nánast öllum fjárfestingum fyrirtækja líka. Þar sem gagnaverin eru að mestu í erlendri eigu skili þau þó minna til landsmanna en stóru tölurnar gefi til kynna. 280 BEIN STÖRF – TÆPLEGA 1.300 ÓBEIN STÖRF Samtök iðnaðarins fjölluðu líka um gagnaverin í greiningu sem þau gáfu út í vikunni. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur samtakanna, bendir á að horfur séu á að útflutningstekjur gagnaveranna og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna á þessu ári, samanborið við rúmlega 41 milljarð króna í fyrra. Efnahagslegu áhrifin séu umtalsverð en við