Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna harðlega hagræðingaraðgerðir og uppsagnir meirihlutans. Þeir saka meirihlutann um vanþekkingu, óvönduð vinnubrögð, skort á pólitískri forystu og að blekkja borgarbúa. Niðurskurður meirihlutans í borginni sé til þess eins að haka við verkefni á verkefnalista.