Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrael. Kjörstöðum í var lokað nú klukkan átta að íslenskum tíma.Samkvæmt ísraelska fjölmiðlinum Channel 12 fær stjórnarandstaðan 52 til 53 sæti á meðan meirihluti Netanyahus fær 50 sæti. Likud-flokkur Netanyahus er þó stærstur flokka með 24 til 25 sæti, samkvæmt útgönguspám. 61 sæti þarf til ná meirihluta á ísraelska þinginu.Arabaflokkar, eða flokkar þar sem meirihluti frambjóðenda eru Arabar, fá samtals 17 til 18 sæti samkvæmt útgönguspánni. Í síðustu kosningum fengu flokkarnir 10 sæti.Kjörsókn var nærri 75% og sú mesta í áratugi. Á kjörskrá eru um 7,3 milljónir en ríflega 10 milljónir búa í Ísrael. Það eru 120 sæti á ísraelska þinginu. Til þess