Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst í dag kynna umfangsmikla afléttingu reglna sem takmarka losun olíu- og gasframleiðenda á metani, gróðurhúsalofttegund sem veldur mikilli hlýnun. Trump mun kynna breytingarnar á stuðningsfundi fyrir Ken Paxton, ríkissaksóknara Texas, sem sækist eftir sæti í öldungadeildinni, að sögn embættismanns í Hvíta húsinu. Texas er langstærsta framleiðsluríki jarðefnaeldsneytis í Bandaríkjunum. Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna (EPA) sagði í yfirlýsingu fyrr...