Ísraelar gengu að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstöðunnar ná þeim fjölda þingsæta sem þarf til að mynda meirihluta.