16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn

Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmtileg persóna. Hann þurfti alveg sitt pláss og hann var rosalega skapandi. Endalaust að skapa og skapa,“ segir Sigrún Pálmadóttir um dótturson sinn, Arnar Atla Björnsson.„Hann var rosalega hlýr og hann var mikið fyrir knús, sem er mjög sérstakt af því hann var með einhverfugreininguna. Ætli það sé ekki eina greiningin sem hann fékk, hefur fengið, það er að hann væri á einhverfurófinu.“Hvenær fór að bera á einhverjum vanda hjá honum?„Bara þegar hann fór á gelgjuna, gelgjuskeiðið byrjaði,“ segir Sigrún.Arnar Atli var eitt af þeim börnum sem eru með svokallaðan fjölþættan vanda. Umræðan um þennan hóp barna og úrræðaleysi fyrir þau hefur aukist á s
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar