Eigendur Sumarlífs hafa flutt inn fyrsta Rokon-mótorhjólið til Íslands en um er að ræða bandarískt hjól sem er sérhannað fyrir bændur, veiðimenn og björgunarsveitir. Þrátt fyrir áratugalanga sögu framleiðandans hefur Rokon aldrei áður verið flutt til landsins.