Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans hóf athugun á meintri markaðsmisnotkun viðskiptavinar bankans í apríl 2024 og í ljós kom að sá hinn sami hafði ítrekað greint starfsmönnum Arion banka frá því að tilgangur viðskipta hans með hlutabréf í Fly Play og Solid Clouds væri að hækka verðið.Þannig hafi Arion banki brotið gegn reglugerð um markaðsmisnotkun og lögum um markaði fyrir fjármálagerninga með því að hafa látið líða hjá að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um viðskipti sem gætu hafa falið í sér markaðsmisnotkun þrátt fyrir að réttmætur grunur hefði átt að liggja fyrir, og hins vegar með því að hafa ekki komið á skilvirku fyrirkomulagi og verklagi til að greina og tilkynna grunsamleg