Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjálfir. „BISSNISSMÓDEL SEM MEIKAR EKKI ALVEG SENS“ Einkareknum búsetuúrræðum sem vista börn með fjölþættan vanda og eru með til þess gerð leyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála í dag, hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu árum. Kostnaður hins opinbera vegna þeirra hefur hækkað verulega og hleypur nú á milljörðum.Andri Már Ágústsson, sem hefur sjálfur unnið í slíkum úrræðum og stofnaði eitt þeirra, segir hvatana í kerfinu skakka.„Þegar þú færð barn til þín, þú færð samning sem borgar vel og ert með fólk í vinnu. Svo gengur vel og þú þarft að segja samningnum upp af því að það gengur svo vel og hann treystir sér til að fara heim, þá ert