Fundu engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar hans er að finna, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.Leitin hófst í morgun og stóð í sjö og hálfa klukkustund.„Með leitaraðgerð dagsins hefur þeim aðgerðum verið lokið sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur unnt að ráðast í á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats. Aðrar aðgerðir sem horft hefur verið til þykja of áhættusamar. Ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir og telst formlegri leit af hálfu lögreglu lokið,“ segir í tilkynningu lögreglu.Þar segir jafnframt að frekari upplýsingar verði ekki veittar.Fréttin verður uppfærð.
Fundu engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar